And the world is a vampire....

29.11.2007 17:21:16 / dikkimo

Endalok???

Hún Harpa systir og Guðjón Bragi eignuðust dreng í gærkvöldi og vil ég færa þeim mínar bestur kveðjur og hamingjuóskir.

Annars er ég að hugsa um að hætta þessu bloggi, tek kannski upp þráðinn síðar. Er einfaldlega alltof of latur við að halda þessari síðu úti og leiðist það.

OVER ´N OUT

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 16:27:02 / dikkimo

KLUKK...!!!

Hún Tinna klukkaði mig og það þýðir 8 staðreyndir um mig, þær eru eftirfarandi:

 

  1. Ég er mikill áhugamaður um tónlist og hef verið síðan ég var ca.11 ára.
  2. Ég hef orðið Íslandsmeistari í knattspyrnu
  3. Ég hef ekki enn lokið námi en stefni á að bæta úr því með tíð og tíma.
  4. Ég er alltaf með móral yfir því að hafa byrjað að reykja og hætt í fótbolta.
  5. Ég var einu sinni með sítt hár.
  6. Ég er að vinna hjá Flugstoðum í sumar.
  7. Ég hef störf hjá Alcoa 1.september.
  8. Ég held með Blackburn Rovers!!!!
 Ég vil klukka eftirfarandi: Sigmar Bónda, Apríl, Guðbjörtu og Davíð Þór.

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 14:19:40 / dikkimo

Flutningar...!

Jæja, enn á ný eru hafnir flutningar en í þetta skiptið á Reyðarfjörð þar sem við Tinna erum að fara að leigja í Tungu. Fínasta pleis og stór garður. Það er bara einn galli, eða tveir. Það er nefnilega einn veggur sem er alveg hryllilega ljótur á litinn, einhvers konar innanpíkubleikur(það sjá það örugglerga allir fyrir sér) og svo er ekki gert ráð fyrir veggljósum/lömpum. en það verður allt í lagi því við erum búin að fá leyfi til að mála!:) Við hentum búslóðinni þangað inn í gærkvöld en það á eftir að raða öllu og allt svoleiðis. Reyndar var hún Tinna búinn að gera alveg HELLING þegar ég kom í gærkvöld eftir vinnu og ég tek ofan fyrir henni. Ég spurði svo Tinnu í ljósi þess að við erum með þennan stóra garð hvort ekki væri kominn tími til að fá sér trampólín og það kom kom einhver glampi í augun á henni og glott. Hugsa að það verði ekki langt í trampólínið ;)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 15:24:43 / dikkimo

Flugvallarkveðja...

Þá eru það úrslit úr skoðannakönnunni sem ég setti upp fyrir einhverju síðan. Glimrandi þátttaka var og hvorki fleiri né færri en 10 stk tjáðu sig....HÚRRA fyrir þeim sem tóku þátt! :$

Úrslitin eru hér:

Þessum 6 sem vilja að maður fari í skóla verður ekki að ósk sinni þetta skiptið því stefnan er sett á vinnumarkaðinn en enn er ekki komið á hreint hvar nákvæmlega maður kemur til með að starfa.

Það er annars lítið að frétta, maður er bara hérna á flugvellinum að láta sér leiðast, það er víst lítið annað sem hægt er að gera. Reyndar er ég búinn að vera að lappa uppá og mála gamla kerru og ætli það verði ekki eina verkefnið sem maður mun hafa hér í sumar? Nei segi svona. En lesumst síðar og ég skal reyna að vera duglegri að blogga.


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 00:00:31 / dikkimo

Slappur bloggari...

Rosalega er maður búinn að vera slappur að blogga undanfarið....USS! Það er líka búið að vera mikið að gera, redda íbúð fyrir austan, pakka, útskriftarferð og svo pakka meira. Við fórum semsagt í útskriftarferð til Fuerteventura og það var ekkert nema tóm gleði og svaka stuð. Það var allt innifalið, þ.e. matur, áfengi(til kl. 23 á kvöldin) og svo hinar ýmsu skemmtanir. Eins og ég segi tóm gleði og svaka stuð og ef fólk vill vita meira þá bara bjalla í kallinn því ég nenni ekki að fara að rekja ferðasöguna hér enda var margt brallað.

En við Tinnfríður erum að flytja á Reyðarfjörð, nánar tiltekið í Tungu eða svo nefnist húsið. Í þessum skrifuðu orðum er búið að drekkhlaða stóra kerru sem ég fékk lánaða og svo hafa ma og pa líka tekið fyrir okkur dót austur ásamt fleirum.

En nú er hún Tinna mín úskrifuð með B.S. í iðjuþjálfunarfræðum og nú er bara næst að sækja um löggildingu svo hún fái hina eftirsóknu nafnbót iðjuþjálfi!

TIL HAMINGJU ENN OG AFTUR ELSKU TINNA MÍN!!!!

Merkilegt hvað 4 ár eru fljót að líða.... En jæja, nenni ekki meir, þarf að fara að lúlla og pakka meira á morgun því kallinn á að vera mættur í vinnu á miðvikudag á flugvöllinn á Egst.


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 10:27:43 / dikkimo

New wheels on the block....

Ég vil hvetja alla þá sem langar að hlægja meira en þeir gera til að tékka á þessu!! Mjög fyndið! Hækka vel í hátölurunum..!!

Kommenta sem aldrei fyrr, langar að heyra viðbrögð!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 22:42:25 / dikkimo

Kosningar!!!

Ég verð nú að viðurkenna að ég er búinn að vera í töluverðum vafa um hvað ég ætti að kjósa í vor en fyrir stuttu síðan var ég eiginlega búinn að ákveða mig. EN svo barst mér tölvupóstur frá félaga mínum og það sem var í tölvupóstinum keypti mig algjörlega!! Ég ráðlegg öllum þeim sem enn hafa ekki gert upp hug sinn að tékka á Þessu!!!

» 7 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 23:56:24 / dikkimo

Sól og sumar

Jamm við förum austur, nánar tiltekið á Reyðarfjörð/Fáskrúðsfjörð þannig að meirihluta kjósenda varð að ósk sinni.

Það er búið að vera GEGGJAÐ veður hér á Akureyris í dag og í gær og lítur fyrir áframhaldandi blíðviðri:) Við Tinna skelltum okkur í göngutúr í dag á stuttbuxum og hlýrabolum einum fata og maður svitnaði bara! Á eftir var svo skellt sér í sund og ég var að alveg að farast eftir klukkutíma og var rosa feginn að komast uppúr, enda er ég núna að deyja úr þreytu og þarf líklega að biðja Tinnu um að halda á mér í rúmið!

Minni á nýja skoðanakönnunn og skora á ykkur til að taka þátt!


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 18:32:56 / dikkimo

Hún á afmæli í dag!!!

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Harpa hún á afmæli í dag!! Innilegar hamingjuóskir til Hörpu systir en hún er XX í dag. Þar sem ég hef stundum farið illa útúr því að tilgreina ákv. aldur kvenna þegar þær eiga afmæli þá ætla ég að sleppa því í dag í virðingarskyni við systur mín! Til hamingju með daginn.

Maður er á næturvöktum á sambýlinu núna og það er ekkert nema kósí! Horfa á dvd eða leika sér í tölvunni alla nóttina og enginn til að skipta sér af, þvílíkur lúxus!:haha: Er að hugsa um að taka bara gott maraþon í football manager í þessari viku svo Tinna hafi alla mína athygli eftir það! Já þetta er aldeilis fínt, mæti kl 22:15 og er til 8:45, verkefnalistinn er ekki merkilegur, moppa yfir gólfin og taka eins og eitt skúr. Það tekur mig ca. 30 mín að ljúka verkefnalistanum. En á milli 7 og 8 getur oft verið fjörugt og eins gott að vera vel vakandi. En sem betur fer taka strákarnir mínir tillit til syfjaða mannsins og haga sér yfirleitt vel!:lol: Þannig að ef einhver vill hringja í mig þá er ég laus og til í spjall.8|

Svo er bara að láta vita af komu sinni :$


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 22:26:08 / dikkimo

Gleðilegt sumar!!

Já það er víst komið sumar samkvæmt dagatalinu. Þetta byrjaði nú ekki nógu vel því í gær síðasta vetrardag ákvað veturinn að minna aðeins á sig og það blasti við manni hvít jörð og bara talsverður snjór, en svo fór sólin að skína. Í dag blasti svo við manni gullfallegur dagur með sól í heiði og snjórinn dropaði af svölunum hjá manni, svo í kvöld er snjórinn að mestu farinn....VEI!!

Svo átti maður afmæli á laugardaginn og ég vil nota tækifærið og þakka fyrir þær kveðjur sem bárust. Mér hlotnaðist tvennt í afmælisgjöf, annars vegar þessi forláta kaffivél frá Tinnu og tengdafólkinu og hins vegar flakkari frá mömmu og pabba og kann þessu yndislega fólki mínar bestu þakkir fyrir!;)

En það er annars í fréttum að Tinna er búinn að fá vinnu á Reyðarfirði og allt útlit fyrir að maður sé að fara að pakka niður drífa sig austur í sumar. En það er ekki laust við að maður eigi eftir að sakna Akureyrar svolítið enda virðist bærinn vinna á með tímanum. Mér leist nú ekkert úber vel á þennan landshluta fyrst en tímarnir breytast og mennirnir með. En í sambandi við fleiri vinnumál að þá er ég löngu búinn að fá vinnu á flugvellinum á Egilsstöðum þar sem ég var í fyrrasumar hjá flugstoðum. Það var reyndar byrjað að hafa samband við mig strax í desember og spurt hvort ég kæmi ekki alveg örugglega aftur. Það skiptir mig alltént máli að finna fyrir því að fólk vill virkilega fá mig í vinnu. Í haust eru svo lausir endar því þá getur maður ekki verið lengur á vellinum og þarf að fara að finna sér einhverju aðra vinnu. Spurnig hvort maður prufi álverið eða fari að keyra einhvers staðar. Þetta kemur allt í ljós þegar líður á sumarið.

En vá, það er kannski best að láta staðar numið að sinni þar sem ég er að verða full háfleygur fyrir eiginn smekk.....

Sigurður kveður í bili.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 12:25:00 / dikkimo

Afmæli

Jæja þá er komið að því, húsbóndinn í Vestursíðu 38d er 25 ára gamall í dag!! Ég mun taka á móti gjöfum í dag milli klukkan 13 og 18. Það verður ábyggilega heitt á könnunni fyrir þá sem sjá sér fært að líta við:lol: Ég fékk nefnilega þessa svaka fínu kaffimaskínu frá TInnu minni og tengdafólkinu mínu!

Afmælisbarnið kveður að sinni.....

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 22:35:10 / dikkimo

Kjarnorkuvopn koma á sjónarsviðið

Eins og við öll vitum voru fyrstu kjarnorkusprengjurnar hannaðar í Bandaríkjunum á árum seinni heimsstyrjaldar. Var sú fyrsta sprengd þann 16. júlí 1945 í eyðimörk Nýju-Mexíkó. Tvær sprengjur voru síðan notaðar til að klykkja út þessum ægilegasta hildarleik mannkynssögunnar þegar þeim var varpað á Hiroshima og Nagasaki.

Sem betur fer eru þær enn í dag einu kjarnavopnin sem notuð hafa verið í hernaði. Þó “smáar” væru miðað við sprengjurnar sem á eftir komu, gáfu þær mönnum óhuggulega hugmynd um það gríðarlega eyðingarafl sem í þessum vopnum fólst. Borgirnar tvær voru í einu vetfangi nánast afmáðar af yfirborði jarðar. Tugþúsundir létu lífið strax og aðrar tugþúsundir næstu mánuði fyrir áhrif hinnar ósýnilegu geislavirkni.

Í ljósi hinnar gríðarlegu eyðileggingar sem þessi vopn höfðu valdið, var eðlilegt að menn veltu fyrir sér hvernig málum skyldi hagað varðandi þau framvegis. Ljóst var að aldrei yrði hægt að “af-uppfinna” kjarnorkuvopn. En yrði þá ekki einhvernveginn að hafa hemil á þeim? Margir vísindamannana sem unnið höfðu að smíði vopnanna í stríðinu, með eðlisfræðinginn Leo Szilard fremstan í flokki, komu fram með tillögu um einhverskonar alþjóðastofnun (e.t.v. á vegum SÞ), sem myndi hafa yfirráð allra kjarnorkuvopna með höndum.

En það varð mjög fljótlega ljóst að slíkar hugmyndir voru skýjaborgir. Bandaríkjamenn höfðu þarna náð miklu forskoti á það ríki sem nú var að breytast úr bandamanni í andstæðing, Sovétríkin. Og það var ljóst að því forskoti ætluðu þeir sér að halda. Kjarnorkuleyndarmálum var ekki einu sinni deilt með helstu bandamönum eins og Bretlandi, hvað þá einhverjum hugsanlegum alþjóðastofnunum sem Rússar væru einnig aðilar að. Strax sumarið 1946 var hafist handa um að prófa nýjar kjarnorkusprengjur. Var það gert á Bikini-rifi í Kyrrahafi, þar sem tilraunum var haldið áfram með hléum næsta áratuginn.

Eins og áður sagði, höfðu kjarnorkusprengjurnar tvær yfir Hiroshima og Nagasaki verið nógu óhugnanlegar, en á næstu árum var sífellt unnið að því að gera þessi vopn öflugri, jafnframt því að byrgja vopnabúrin með þeim. Hiroshima sprengjan hafði verið af einföldustu gerð kjarnorkusprengja, þetta var atómsprengja sem byggði verkun sína á tveim auðguðum úrankjörnum sem skotið var saman til að skapa klofnings-keðjuverkun. Nagasaki sprengjan var plútóníum sprengja af eilítið flóknari gerð, samt “bara” atómsprengja sem byggði á klofningi atóms.

Fljótlega fóru eðlisfræðingar með Edward Teller fremstan í flokki að huga að hönnun annarar gerðar kjarnorkuvopna. Sú nefndist vetnissprengja, og myndi byggjast á samruna tveggja vetniskjarna, og gæti orðið þúsund sinnum öflugri en “venjuleg” atómsprengja. Var umdeilt hvort yfirleitt væri þörf á svo hrikalegu vopni. Robert Oppenheimer, sem hafði verið yfirmaður kjarnorkurannsókna í stríðinu, var andvígur hönnun vetnissprengjunnar. Hann mætti á fund Trumans forseta, að því er virtist ekki í andlegu jafnvægi, og talaði um “blóð á höndum sínum” – væntanlega meinandi Hiroshima og Nagasaki. Truman bað um að þessum manni yrði framvegis ekki hleypt nálægt sér, og eftirleiðis átti Teller – “faðir vetnissprengjunnar” – eyra forsetans varðandi kjarnorkuvopnaþróun.

Á meðan á þessu stóð unnu Rússar einnig hörðum höndum að því jafna forskotið með sinni eigin sprengju. Bandaríkjamenn höfðu ekki miklar áhyggjur af rússnesku sprengjunni á þessum tíma, þeir töldu Rússa eiga a.m.k. fimmtán ár enn í land, án þess þó að hafa mikið fyrir sér í mati. Það var í september 1949 sem Bandaríkin vöknuðu skyndilega upp við vondan draum þegar Rússar sprengdu sína fyrstu sprengu. Truman fyrirskipaði fljótlega að þróun vetnissprengju skyldi haldið áfram á fullum krafti. Kjarnorkukapphlaupið var hafið, og óhugur almennings jókst á næstu árum þar til hann var að sumra mati kominn uppí hreina hysteríu.


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 00:36:41 / dikkimo

Ha ha ha!!!

Rakst á þetta og gat ekki annað en skellt uppúr! http://www.drengsson.net/hverer/


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 14:08:48 / dikkimo

Atburðir helgarinnar....

Áður en ég set inn nýja fróðleiksfærslu ætla ég að segja örlítið frá atburðum helgarinnar. Við Tinna skelltum okkur á ´70 og´80 partý á Allanum á laugardagskvöld og klæddum okkur upp samkvæmt því. Ég setti á mig stórt peace merki sem Tinna hafði skorið út og sett álpappír utan um, svo var í gamalli skyrtu af ömmu hennar sem reyndar var alltof lítil en það var bara gaman að því. Tinna var í einhverri mussu, með svarta hárkollu og eldgömul gleraugu svaka töff. Við vorum semsagt eins og fífl en maður lifir bara einu sinni ekki satt? Þetta var bara voða gaman og við skemmtum okkur mjög vel.

Á sunnudaginn fórum við Tinna á skauta og nota bene það var í annað skipti á ævinni sem ég prufaði það!! Gekk merkilega vel, ég datt allavega ekki á rassgatið. Tinna er nú mun betri en ég enda farið aðeins oftar. Voða gaman en mikið djö..... var mér orðið illt í fótunum! Málið er það að við vorum búin að tala um þetta í allan vetur á fara en aldrei farið svo að á fimmtudaginn setti ég miða á ísskápinn sem á stóð: "Tinna Hrönn! Athygli er vakin á því að þú ert vinsamlegast beðin um að taka sunnudaginn 17.mars frá því ég og þú erum að fara á SKAUTA!!!" Ég held að frúin hafi verið ánægð með þetta framtak, allavega vona ég það!! Næst eru það svo skíðin, maður er búinn að búa hér í 4 ár og ég hef aldrei farið á skíði í Hlíðarfjalli, það er skömm að þessu!

Í gærkvöldi þegar við vorum svo að fara að sofa og bæði , allavega ég kominn með talsverðan svefngalsa fór Tinna að segja mér frá gömlum skólabróðir sem fór til Afríku að sækja sér konu, ég spurði: Nú? hvaða land var þetta í Afríku? Æi, eitthvað Afríku eitthvað! Þetta fannst mér svona líka fyndið og gjörsamlega sprakk og stríddi Tinnu á þessu og sagði henni að ég myndi sko blogga um þetta, held að hún verði nú ekkert hrifin af því. En þetta fannst mér svaka fyndið og kenni um svefngalsa því í dag er þetta ekki á nánda jafn fyndið.

Ég hvet alla til að kommenta og taka þátt í skoðannakönnunn, þ.e. þeir sem ekki enn hafa gert það!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 17:37:09 / dikkimo

Framhald raðmorðingjar...

Richard "The Night Stalker" Ramirez


Richard Ramirez gerði lítið annað á unglingsárum sínum en að reykja gras, hlusta á rokktónlist (AC/DC var í uppáhaldi hjá honum) og flækjast um, stelandi og komandi sér í vandræði. Hann hékk mikið með frænda sínum, Mike, sem var grænhúfa úr Víetnam. Mike og Richard reyktu hass saman og Mike sagði honum sögur úr stríðinu, hann gortaði sig af því að hafa misþyrmt og myrt saklaust fólk og sýndi Richard myndir sem hann hafði tekið af vígvellinum. Richard fannst þetta æðislegt. Og þegar konan hans Mike fór eitthvað að rífast í manninum sínum og reyna að fá hann til að fá sér vinnu og gera eitthvað að viti tók hann upp skammbyssu og skaut hana í hausinn fyrir framan Ramirez. Nokkrum árum síðar, árið 1978 þegar Ramirez var átján ára flutti hann einn til Los Angeles. Þar stundaði hann það að brjótast inn í hús og ræna verðmætum hlutum. Hann varð alltaf djarfari og djarfari og í þessu og fór smátt og smátt að eyða meiri tíma í húsunum. Standandi yfir fólkinu þegar það var sofandi, stelandi nærbuxum úr nærfataskúffum kvenna og svoleiðis. Fyrsta þekkta fórnarlamb hans var hin 79 ára gamla Jennie Vincow. Hann nauðgaði henni, stakk hana nokkrum sinnum og skar hana síðan svo hrottalega á háls að hún varð eins og Pez-kall. Ramirez hélt þessu áfram. Hann réðst inn í hús á nóttinni, drap fólkið þar meðan hann blastaði AC/DC, reykti jónur, fékk sér að éta úr ísskápnum og teiknaði djöflastjörnur og skrifaði slagorð á veggina. Fólk fór að óttast hann og salan á þjóvarvarnarkerfum og lásum varð meiri og meiri. Blöðin gáfu honum nafnið "Night Stalker". Mér finnst Ramirez vera næst kynþokkafyllsti raðmorðinginn á eftir Ted Bundy sjálfum. Meðan á réttarhaldi hans stóð var hann elskaður af kvennfólkinu líkt og Ted Bundy, og hann giftist einum aðdáandanum áður en hann varð tekinn af lífi.
Í réttarhöldunum mælti Ramirez þessi orð:
"You don't understand me. You are not expected to. You are not capable of it. I am beyond your experience. I am beyond good and evil. I don't believe in the hypocritical, moralistic dogma of this so-called civilized society. I need not look beyond this courtroom to see all the liars, the haters, the killers, the crooks, the paranoid cowards -- truly trematodes of the Earth, each one in his own legal profession. You maggots make me sick! Hypocrites one and all. We are all expendable for a cause. No one knows that better than those who kill for policy, clandestinely or openly, as do the governments of the world which kill in the name of god and country. I don't need to hear all of society's rationalizations. I've heard them all before and the fact remains that what is, is. Legions of the night--night breed-- repeat not the errors of the Night Prowler and show no mercy. I will be avenged." Og þegar hann var dreginn út úr réttarsalnum bætti hann við;
"No big deal, death comes with the territory. See you in Disneyland!"

Jæja þetta fer nú að verða gott af raðmorðingjum. Nú má fara að búast við aðeins öðruvísi færslum og fróðleik.

Bless í bili og áfram BLACKBURN!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012